Ágú 21: Og þá er stokkið...
Ég fór í fyrsta tímann áðan, tölvuhögun. Tíminn var nú ósköp rólegur, bara verið að kynna fagið, hvað verður farið í, tilhögun námsmats og dæmatíma osfrv. Fyrirlestrarnir eru allir teknir upp, bæði screencast og hljóðrás af því sem kennarinn segir. Ansi þægilegt þegar það kemur að því að ríkappa e-ð fyrir próf eða bara við almennt nám. Svo er haldið í forritunartíma á eftir, með sama kennara og í tölvuhögun jafn sem í þessum námskeiðum sem ég fór í og hef skrifað um. Það er gaman að fá þennan 1.bekkjar fiðring í magann aftur, svona þegar maður gekk inn í skólann, þekkti engan, og vissi ekki hvert ætti að snúa sér við minnstu tilefni.
Þetta verður vonandi hresst. Ég er allaveganna mjög spenntur fyrir því að glíma við komandi verkefni, vona að ég endist sem lengst yfir þeim, það þýðir ekkert að pulla MH á þetta. Nú þarf bara að berja smá aga inn í mig. Held ég láti þennan sjá um það.

Ágú 15: HR Færsla 5:tudagur
Við lærðum um rökgildi(booleans) og strengi í dag. Rökgildi skila alltaf 0 eða 1, true eða false og eru einstaklega notadrjúg tól. Til dæmi má nota þær til þess að bera saman og eru augljóslega handhæg tól þegar notuð eru með if skipunum. Strengir eru eins og nafn þeirra gefur til kynna setningar, orð, samansafn af hverju sem er í raun. Málið er hinsvegar að ólíkt char, bool, int og double er þetta ekki breyta, heldur klassi útaf fyrir sig. Þannig að hægt er að sækja upplýsingar í streng hvar sem er, og nota alls konar methods á hann.
Rökgildi.
Síðan skrifaði ég forrit sem að tekur inn ártal og tjékkar svo á því hvort það sé hlaupár eða ekki.
Hlaupár.
Að lokum er eitt strengjaforrit.
Upphafsstafir.
Svít, skólinn byrjar með kynningu á mánudaginn og þriðjudaginn. Svo er fyrsta kennslustundin á fimmtudaginn :D:D:D:D:D
Rökgildi.
import java.util.Scanner; // það þarf að importa Scanner klasanum
// til að fá aðgang að honum
public class Rokgildi{
public static void main(String[] args) {
Scanner lesaAfLyklabordi = new Scanner(System.in);
System.out.println("Sláðu inn fyrri töluna ");
int tala1 = lesaAfLyklabordi.nextInt();
System.out.println("Sláðu inn seinni töluna ");
int tala2 = lesaAfLyklabordi.nextInt();
// Hér er fallið somuTolur ræst sem skilar annað hvort
// true eða false, af því að fallið skilar skilagildi
// af taginu boolean
if (somuTolur(tala1,tala2))
System.out.println("Sömu tölur ");
else
System.out.println("Ekki sömu tölur ");
}
/**
<strong> Dæmi um hvernig fallið somuTolur er útfært má sjá hér að neðan:
</strong>/
public static boolean somuTolur(int t1, int t2)
{
return t1==t2;
} // Hér endar fallið
} // Hér endar klasinn
Síðan skrifaði ég forrit sem að tekur inn ártal og tjékkar svo á því hvort það sé hlaupár eða ekki.
Hlaupár.
import java.util.Scanner;
public class Hlaupaar2 {
public static void main(String[] args) {
Scanner lesa = new Scanner(System.in);
System.out.print("veldu ár: ");
int ar = lesa.nextInt();
boolean hlaupaar = erHlaupar(ar);
if (hlaupaar == true)
System.out.println("Árið er hlaupaár. ");
else
System.out.println("Árið er ekki hlaupaár. ");
}
public static boolean erHlaupar(int prufaAr) {
if ((prufaAr % 4 == 0) && (prufaAr % 100 !=0) || (prufaAr % 400 == 0))
return true;
else
return false;
}
}
Að lokum er eitt strengjaforrit.
Upphafsstafir.
import java.util.Scanner;
public class Upphafsstafir {
public static void main(String[] args) {
Scanner lesa = new Scanner(System.in);
System.out.print("Hvert er nafnið? ");
String nafn = lesa.nextLine();
int lengd = nafn.length();
finnaStaf(nafn, lengd);
}
public static void finnaStaf(String n, int l) {
System.out.print("Halló, "+n+", upphafsstafir þínir eru ");
System.out.print(n.charAt(0));
for (int i=0 ;i<l ; i++){
if (n.charAt(i) == ' ')
System.out.print(n.charAt(i+1));
}System.out.print("\n");
}
}
Svít, skólinn byrjar með kynningu á mánudaginn og þriðjudaginn. Svo er fyrsta kennslustundin á fimmtudaginn :D:D:D:D:D
Ágú 15: Norðmenn eru allt í lagi.
Kíkti á Magga í gær, kallinn kominn heim eftir dvöl í Berlín í rúmt hálft ár. Þetta var hresst, fórum á breakbeat.is fastakvöld á 22. Þemað var dubstep. Dubstep er fyndin tónlistarstefna. Í mínum eyrum er þetta eins og einhver myndi skella einhverjum South Central, LA 2-step rapptakti í blandara með subbulega djúpum oscillatandi bassa(gott orð yfir hann: wobbly) með dassi af downtempo drum & bass og Fruity Loops. Þá fengi maður að öllum líkindum út Oliver Jones a.k.a Skream. Þetta á að vera einn af frumkvöðlum dubstep. Ég veit svosum ekki neitt um dubstep, en þetta getur orðið ansi kúl í hljóðkerfi sem nær niður í 20Hz. Bowel-emptying stuff.
Ég hef mæspeysuflakkað svolítið upp á síðkastið. Vil koma á framfæri hljómsveit sem að ég er að fíla frekar mikið. Martyn and the Chimp er norskt band sem að kemur frá Sarpsborg( sem hefur að geyma ákveðinn lýðháskóla sem hefur mjög öflugt tónlistarlíf, var meira að segja að pæla í að fara þangað sjálfur á tímapunkti.) Þetta er angurvær popptónlist með áherslur á elektróník. Af þessum 2500 hlustunum sem þeir hafa hlýt ég að hafa svona 200. Annað band sem ég hef verið að hlusta þó nokkuð á er Schæfer, sem einnig er norskt og kemur jú líka frá Sarpsborg(ansi mögnuð borg!). Þeir eru rokkaðri og kaótískari, með söngvara sem hljómar eins og verið sé að pynta hann. Mæli með laginu Elbow on my Chin, luv that stuff.
Síðast en ekki síst vil ég minnast á The National Bank. The National Bank er prójekt Lars og Morten Horntveth( of Jaga Jazzist fame) og Thomas Dybdahl. Þeir eru undir miklum áhrifum Jaga að sjálfsögðu sem er ekkert nema frábært því jaga er magnað band og því er rafmagn ansi áberandi í lögum þeirra. Mjúk rödd Thomas gerir þetta svo að eðal poppi. Mæli með Tolerate og Home á mæspeysunni þeirra.
Svei mér þá ef ég geri þetta ekki að einhverjum dálki. Annars er nördablogg handan við horni ( and there was much rejoicing!).

Ágú 13: HR færsla 4: In a galaxy far, far away...
Jæja, lærði um föll í dag. Föll eru basicly forrit innan í klasa, sem að hafa ákveðna fúnktíon. Hægt er að nota svokallaðar færibreytur til þess að dæla föllin full af upplýsingum úr main klassanum. Síðan vinnur fallið með færibreyturnar og hefur þann möguleika að skila af sér þeim upplýsingum sem það hefur búið til. Til þess notar fallið svokallaðar skilabreytur sem að þarf þá að skilgreina.
Fall
Og svo höfum við forrit sem að ég gerði, sem að tekur inn mánuð og dag, og reiknar hversu margir dagar eru búnir af árinu.
DagarAfAri.java
Hefði nú viljað leysa sumt af þessu öðruvísi, en ég kann bara svo mikið eftir 5 daga af námskeiði. Það verður gaman að sjá hvað ég kann eftir 5 mánuði.
Fall
public static void nyttFall();
//public gefur til kynna hvort hægt sé að nálgast fallið einhversstaðar
//void þýðir að það er engin skilabreyta sem að kemur úr fallinu, þetta gæti verið e-ð annað, t.d double ef
//að það er return double breyta eða e-ð. ÞE tag Skilagildis.
//nyttFall er nafnið á fallinu
//() sviginn á eftir nafninu á fallinu inniheldur færibreytuna, þ.e. þær upplýsingar sem að main forritið gefur.
//Þá þarf að skilgreina færibreytuna sem nýja breytu innan fallsins.
Og svo höfum við forrit sem að ég gerði, sem að tekur inn mánuð og dag, og reiknar hversu margir dagar eru búnir af árinu.
DagarAfAri.java
import java.util.Scanner;
public class DagarAfAri {
public static void main(String[] args) {
Scanner lesa = new Scanner(System.in);
int manudur, dagur;
do{
System.out.println("Hvada manudur? ");
manudur = lesa.nextInt();
if (manudur <=0 && manudur >=13)System.out.println("Reyndu aftur.");
}while (manudur <=0 || manudur >=13);
do{
System.out.println("Hvada dagur thess manadar?");
dagur = lesa.nextInt();
if (manudur == 2 && dagur >= 28)
System.out.println("Heyrdu kallinn!");
else if (manudur == 4 && dagur >= 31)
System.out.println("Heyrdu kallinn!");
else if (manudur == 6 && dagur >= 31)
System.out.println("Heyrdu kallinn!");
else if (manudur == 9 && dagur >=31)
System.out.println("Heyrdu kallinn!");
else if (manudur == 11 && dagur >=31)
System.out.println("Heyrdu kallinn!");
}while(dagur >= 32);
int sum = reiknaDag(manudur, dagur);
System.out.println("Thad eru "+ sum +" dagar bunir af arinu." );
}
public static int reiknaDag(int m, int d) {
final int MANFJ = 13;
int leftovers = 0;
int[] manudir = new int[MANFJ];
manudir[0] = 0;
manudir[1] = 31;
manudir[2] = 28;
manudir[3] = 31;
manudir[4] = 30;
manudir[5] = 31;
manudir[6] = 30;
manudir[7] = 31;
manudir[8] = 31;
manudir[9] = 30;
manudir[10] = 31;
manudir[11] = 30;
manudir[12] = 31;
for(int i = 0; i <= m; i++) {
leftovers += manudir[i];
}
int dagarmanadar = manudir[m]-d;
return leftovers-dagarmanadar;
}
}
Hefði nú viljað leysa sumt af þessu öðruvísi, en ég kann bara svo mikið eftir 5 daga af námskeiði. Það verður gaman að sjá hvað ég kann eftir 5 mánuði.
Ágú 12: HR færsla 3: Þriðjudagur
Í dag var aðallega verkefnatími. Kennarinn okkar, hann Hallgrímur Arnalds, vildi skiljanlega að við æfðum færni okkar í þessum einna mikilvægustu skipunum Java. Í dag var þó lítillega farið í strengi og breytuna character.
Strengir
Síðan var bara unnið og unnið. Ég er mjög stoltur af því að hafa klárað eitt af skilaverkefnum komandi annar(líklegast ansi snemma á önninni þó
). Þetta forrit teiknar kassa úr stjörnum. Notandi getur ráðið því hvort fylla á upp í kassann eða ekki. Forritið er fullt af for lykkjum og slaufusvigum þannig að á köflum var þetta orðið ansi torlesið fannst mér. Vona að það breytist með tímanum. Þetta er líka eflaust lengsta Java forritið sem ég hef skrifað hingað til.
Ferningur.
Strengir
import java.util.Scanner;
public class Strengur {
public static void main(String[] args) {
Scanner lesa = new Scanner(System.in);
System.out.println("Hvað heitir þú?");
String nafn;
nafn = lesa.nextLine(); //NEXTLINE gefur til kynna að forritið
//setur meira en eitt orð inn í
//breytuna nafn. Annars væri það bara .next();
System.out.println("Halló, " + nafn);
}
}
Síðan var bara unnið og unnið. Ég er mjög stoltur af því að hafa klárað eitt af skilaverkefnum komandi annar(líklegast ansi snemma á önninni þó
Ferningur.
import java.util.Scanner;
public class Ferningur {
public static void main(String[] args) {
Scanner lesa = new Scanner(System.in);
int lina;
int dalkur;
char svar;
int ofylltlina;
do {System.out.println("Viltu fylla ferninginn?");
String strSvar = lesa.next();
svar = strSvar.charAt(0);}
while (svar != 'j' && svar != 'n');
System.out.println("Línufjöldi? ");
lina = lesa.nextInt();
dalkur = lina;
ofylltlina = lina-2;
int ws = 0;
if (svar == 'j'){
for(int i = 0; i <dalkur; i++) {
for(int l =0; l <lina; l++)
System.out.print("*");
System.out.print("\n");
}
}
else if (svar == 'n') {
for (int i = 0; i <lina; i++){
System.out.print("*");
}System.out.print("\n");
for(int i = 0; i <ofylltlina; i++) {
System.out.print("*");
for(int l =0; l <lina-2; l++)
System.out.printf(" ");
System.out.print("*");
System.out.print("\n");}
for (int i = 0; i <lina; i++){
System.out.print("*");
}System.out.print("\n");
}
}
}
Ágú 11: Hvað lærðirðu í dag, Davíð?
HR námskeiðsfærsla 2
Í dag var farið í lykkjur. Það eru til 3 týpur af lykkjum, það eru Do-While, While og For lykkjur, sem allar hafa ákveðinn notkunarmöguleika. Do While byrjar á því keyra tilteknar skipanir áður en lykkjan lítur á While skilyrðið. While skilgreinir skilyrðið fyrst og fer svo í lykkjuna, þannig að ef að skilyrðinu er ekki mætt þá heldur forritið áfram án lykkjunar. For hegðar sér þannig að þú byrjar á því að gefa einhverja ákveðna stillingu, t.d tala x = 1. Síðan gefurðu lykkjunni skilyrði; t.d talan x <= talan y. Síðast skilgreinirðu hvað gerist í lok lykkjunnar. Yfirleitt er það nú bara talan++, eða talan + 1, sem að vistast þá í minnið.
Do/While lykkja
While lykkja.
For lykkja. Hérna erum við komin með forrit sem að biður um tölu, og síðan prentar það út allar tölurnar frá 1 að að þeirri tilteknu tölu.
Svo að lokum lítið forrit sem að notar þetta. Þetta að neðan er forrit sem að biður um tommufjölda og umreiknar síðan yfir í cm og fet. Það gerir það líka fyrir allar tölur sem koma á undan þeirri tölu sem valin er og skilar af sér í litlum lista.
Meira nerdspeak á morgun.

public class ForTeljari {
public static void main(String[] args) {
Scanner lesa = new Scanner(System.in);
int teljari = 1;
int upphaed;
do {
System.out.print("hversu hátt skal telja?");
upphaed = lesa.nextInt();
if (upphaed <=0 || upphaed > 1000)
System.out.println("Þú átt að slá inn pósitífa tölu undir 1000!");
} while( upphaed <= 0 || upphaed > 1000);
for(teljari = 1;teljari <=upphaed;teljari++)
{
System.out.print(teljari +" ");
}
System.out.println("\nForrit búið.");
}
}
Svo að lokum lítið forrit sem að notar þetta. Þetta að neðan er forrit sem að biður um tommufjölda og umreiknar síðan yfir í cm og fet. Það gerir það líka fyrir allar tölur sem koma á undan þeirri tölu sem valin er og skilar af sér í litlum lista.
import java.util.Scanner;
public class TommurCm {
public static void main(String[] args) {
Scanner lesa = new Scanner(System.in);
int maxtommur;
double cm;
double fet;
do {
System.out.print("Hversu margar tommur?");
maxtommur = lesa.nextInt();
if (maxtommur <= 0 || maxtommur > 30) System.out.println("Ekki fara undir núll né hærra en 30!");
} while(maxtommur <= 0 || maxtommur > 30);
System.out.println("Tommur Cm Fet");
for(double tommur = 1; tommur <= maxtommur; tommur++)
{
cm = tommur * 2.53;
fet = tommur/12;
System.out.printf("%2.0f %7.2f %5.2f %n", tommur, cm, fet);
}
System.out.println("Forrit búið.");
}
}
Meira nerdspeak á morgun.
Ágú 11: Skondið ..?
Ég er staðsettur í Apple búðinni í Kringlunni eins og er, þar sem ég vinn þangað til að skólinn byrjar. Á mánudögum má segja að ég byrji að vinna klukkan 12 þó ég mæti klukkan 10, lítið að gera og fæstir Reykvíkingar í verslunarstuði á mánudagsmorgni. Þó hafði ég eitthvað til þess að skemmta mér yfir. Eins og kannski einhver veit er Apple búðin að flytja í stærra húsnæði í Kringlunni(beint á móti Ríkinu, eðal!). Það þýðir að þessari Applebúðarholu sem að er staðsett við hliðina á símabúðunum tveimur verður lokað og einhver annar flytur inn. Þannig var mál með vexti að sölu- og markaðsstjóri TAL, Sigmar(Simmi 70 mínútur, sá gaur) var e-ð að skoða búðina ásamt einhverjum konum, líklegast hönnuðum einhverjum. Þær voru að lýsa fyrir honum þeim hugmyndum sem þær höfðu um rýmið. Nokkuð inn í samræður þeirra taka þau eftir steinunum sem að steyptir eru ofan í gólfið. Samræður þeirra voru nokkurn veginn á þennan máta:
Epískt dæmi.
Simmi: Nei sko, hvaða steinar eru þetta í gólfinu?
Kona 1: Við vorum að pæla í að mála þá appelsínugula.
Kona 2 Já, í svona TAL stíl.
Simmi: Haha, Steinn..Steinarr!
Simmi: Þúveist, Steinn, margir Steinarr, eh?
Kona 1, Kona 2 Haha.
Epískt dæmi.
Ágú 11: HR Námskeið
Ég hóf óbeint skólagöngu mína í tölvunarfræði við HR á fimmtudaginn. Ég skráði mig á námskeið í forritun f/ byrjendur. So far so good. Kennt er á helstu þætti forritunarmálsins Java, allt gott og blessað. Ég ætla mér að setja inn þau forrit sem ég skrifa í þessum tímum inn svo mér til gagns og gamans.
Þetta er klassískasta forritið, að fá forritið til þess að prenta Halló heimur.
Síðan kom e-ð aðeins meira. Að heimta upplýsingar frá notanda. Þetta forrit reiknar flatarmál og ummál eftir að notandi gefur upp radíus. Síðan prentar forritið svarið.
Síðan var þetta allt saman nýtt ásamt nokkrum öðrum grunnatriðum í þetta forrit. Þetta forrit reiknar 10 sinnum töflu þeirrar tölu sem notandinn biður um. Ef notandinn fer yfir leyfða hámarkstölu(100000) þá spyr forritið hvort notandi vilji prufa aftur.
Planið er síðan að bæta við nýjum færslum með nýjum "Ég lærði þetta í dag" dæmum, a.m.k alla næstu viku.
Þetta er klassískasta forritið, að fá forritið til þess að prenta Halló heimur.
// Fyrsta Java forritið
//þetta er forrit sem skrifar textann "Hallo heimur" á skjáinn
public class Hallo {
public static void main(String[] args) {
System.out.println("Hallo heimur.");
}
}
Síðan kom e-ð aðeins meira. Að heimta upplýsingar frá notanda. Þetta forrit reiknar flatarmál og ummál eftir að notandi gefur upp radíus. Síðan prentar forritið svarið.
import java.util.Scanner;
public class TestScanner {
public static void main(String[] args) {
// Buum til tilvik af Scanner klasanum
Scanner lesa = new Scanner(System.in);
double radius;
//Krefjast radius
System.out.println("Sladu inn radius:");
radius = lesa.nextDouble();
System.out.println("Thu valdir: " + radius);
//Staerdfraedi
double flatarmal;
flatarmal = radius * radius * 3.14159;
double ummal;
ummal = radius * 2 * 3.14159;
//Svar
System.out.println("Flatarmalid med radius " + radius + " er " + flatarmal + ". Ummalid er " + ummal);
}
}
Síðan var þetta allt saman nýtt ásamt nokkrum öðrum grunnatriðum í þetta forrit. Þetta forrit reiknar 10 sinnum töflu þeirrar tölu sem notandinn biður um. Ef notandinn fer yfir leyfða hámarkstölu(100000) þá spyr forritið hvort notandi vilji prufa aftur.
import java.util.Scanner;
public class Margfalda {
public static void main(String[] args) {
Scanner lesa = new Scanner(System.in);
System.out.print("Hva?a töflu viltu sjá?");
int e,h;
char svar;
e = lesa.nextInt();
if (e >= 100000) {
System.out.print("Róa?u ?ig a?eins vinurinn!");
System.out.print("Viltu velja a?ra tölu?");
String strSvar = lesa.next();°
svar = strSvar.charAt(0);
if (svar == 'j' || svar == 'J') {
System.out.print("Og talan er: ");
e = lesa.nextInt();
}
else
System.out.print("?á getur ?ú bara veri? úti!");
}
if (e < 100000) {
System.out.print("10 sinnum taflan fyrir "+ e +" er: ");
for(int i = 1; i<=10;i++) {
h = i*e;
System.out.print(" " + h);
}
}
System.out.print("\n");
}
}
Planið er síðan að bæta við nýjum færslum með nýjum "Ég lærði þetta í dag" dæmum, a.m.k alla næstu viku.
Ágú 10: Hæ, ég er að blogga!
Hæ!
Hér getið þið skemmt ykkur yfir lélegu orðafari og málvillum galore! Alltaf ætlað að búa til mitt eigið kerfi en afhverju að gera það þegar maður fær svona fínt kerfi open source á netinu?
Þetta er Serendipity og er ansi magnað. Enn og aftur ætla ég að rebelast og nota ekki wordpress. Anyhow, ég hef verið að vinna mikið með hljóð undanfarið. Þá sérstaklega upptökur með bandinu mínu, sem ekki hefur fengið nafn eins og er. Sem Apple maður notast ég við Logic Pro við upptökur og hljóðblöndun. Einnig nota ég lítinn míkrófónformagnara frá M-Audio, svokallaðan Firewire 1814. Það er mjög auðvelt að gleyma sér við fiktið. Þetta er lagið sem við tókum upp, svona síðasta skiptið sem ég bánsaði því úr logic. Lagið heitir Setan.
Hljómsveitin er nýflutt inn í TÞM eftir að hafa verið rekin út úr því gamla og planar á að vera þar um ókominn tíma. Talandi um TÞM, þá las ég áhugaverða blaðagrein sem hengd er upp á vegg í TÞM. Hún kom inn á aðstöðuleysi ungra tónlistarmanna á íslandi og hver stofnkostnaður hljómsveitar er. Þar var talan 300-700.000 nefnd. Sú tala meikar fullkomið sens. Svo er hægt að bæta ofan á það kostnað vegna æfingahúsnæðis, trommukjuðar, strengir ofl. ofl. Þetta er ansi þung byrði fyrir 13-14 ára gutta sem að langar að hittast og búa til tónlist. Að vísu má deila um stærð og fyrirkomulag, en allt í allt, með ágætis trommusetti, gítarmagnara og gítars, bassamagnara og bassa, svo ekki sé talað um söngkerfi( sem að fæst bönd eru með, þar sem að þau eru fjáranum dýrari), er maður ekki lengi að ná vel í þriðja hundrað þúsund krónur. Merkilegt hvernig íþróttahallirnar spretta upp eins og gorkúlur en eini staðurinn, "íþróttahöllin" fyrir unga tónlistarmenn, eða bara alla tónlistarmenn, er TÞM, gamalt frystihús sem gert var upp og er nú í hálfgerðri niðurníðslu vegna fjárskorts. Af hverju er ekki hægt að byggja og reka 1 stk æfingahúsnæði svona einu sinni? Minni hljóðmengun í íbúðarhverfum, engir reiðir nágrannar, ekkert vesen. Efa það að það sé e-ð dýrara en að reka Kórinn eða Fífuna?
Að ég sé ennþá að nöldra yfir þessu, meiri vitleysan.
Hér getið þið skemmt ykkur yfir lélegu orðafari og málvillum galore! Alltaf ætlað að búa til mitt eigið kerfi en afhverju að gera það þegar maður fær svona fínt kerfi open source á netinu?
Hljómsveitin er nýflutt inn í TÞM eftir að hafa verið rekin út úr því gamla og planar á að vera þar um ókominn tíma. Talandi um TÞM, þá las ég áhugaverða blaðagrein sem hengd er upp á vegg í TÞM. Hún kom inn á aðstöðuleysi ungra tónlistarmanna á íslandi og hver stofnkostnaður hljómsveitar er. Þar var talan 300-700.000 nefnd. Sú tala meikar fullkomið sens. Svo er hægt að bæta ofan á það kostnað vegna æfingahúsnæðis, trommukjuðar, strengir ofl. ofl. Þetta er ansi þung byrði fyrir 13-14 ára gutta sem að langar að hittast og búa til tónlist. Að vísu má deila um stærð og fyrirkomulag, en allt í allt, með ágætis trommusetti, gítarmagnara og gítars, bassamagnara og bassa, svo ekki sé talað um söngkerfi( sem að fæst bönd eru með, þar sem að þau eru fjáranum dýrari), er maður ekki lengi að ná vel í þriðja hundrað þúsund krónur. Merkilegt hvernig íþróttahallirnar spretta upp eins og gorkúlur en eini staðurinn, "íþróttahöllin" fyrir unga tónlistarmenn, eða bara alla tónlistarmenn, er TÞM, gamalt frystihús sem gert var upp og er nú í hálfgerðri niðurníðslu vegna fjárskorts. Af hverju er ekki hægt að byggja og reka 1 stk æfingahúsnæði svona einu sinni? Minni hljóðmengun í íbúðarhverfum, engir reiðir nágrannar, ekkert vesen. Efa það að það sé e-ð dýrara en að reka Kórinn eða Fífuna?
Að ég sé ennþá að nöldra yfir þessu, meiri vitleysan.
« fyrri síða
(Blaðsíða 1 af 1, með samtals 9 færslur)
næsta síða »